Landrek
Ysta lag jarðarinnar er gert úr jarðskorpuflekum sem hreyfast hver gagnvart öðrum. Þessi hreyfing flekanna er lárétt og er talið að hún hafi átt sér stað allt frá upphafi jarðsögunnar. Þessi hreyfing kallast landrek. Landrekið hefur valdið því að meginlönd hafa flust til og frá, höf opnast og lokast, fjallgarðar risið og eldfjöll myndast. Hreyfingin á landrekinu í dag er á bilinu 2-20 cm á ári.