Innræn öfl eru þau stórbrotnu öfl sem koma úr íðum jarðar og fá útrás í eldgosum, jarðskjálftum, gliðnun á úthafshryggjum og myndun fellingarfjalla. Innræn öfl gerir yfirborð jarðar ójafnt og stuðlar að því að jarðskorpuflekarnir eru á sífelldri hreyfingu. Innrænu öflin byggja sífellt upp hæðir og fjöll með eldgosum og árekstrum jarðskorpufleka. Þegar jarðskorpuflekarnir nuddast saman koma jarðskjálftar. Jarðskorpan er mynduð af svonefnum jarðskorpuflekum sem hreyfast hver gagnvart öðrum.