Flekamót
Sjö stærstu jarðskorðuflekarnir þekja 94% af yfirborð jarðar. Eini stóri úthafsflekinn er Kyrrahafsfleki. Sex af stóru flekunum eru meginlönd. Mörk milli jarðskorpufleka kallast flekamót. Flekamót er þrenns konar, fráreksbelti, samreksbelti og hjáreksbelti. Fráreksbelti er þegar flekar hreyfast frá hvor öðrum. Þegar gliðnunin á sér stað flæðir bergkvika upp úr iðrum jarðar og storknar þar og þá myndast ný jarðskorpa. Á Íslandi er svona gliðnunarbelti sem liggur eftir endilöngum Atlantshafshryggnum. Atlantshafshryggurinn liggur eftir endilöngu Atlantshafinu. Flekarnir sem liggja við Íslandi eru Evrasiu – flekinn og Norður - Ameriku – flekinn. Samreksbelti eru þau svæði þar sem flekar hreyfast á móti hvort öðrum og við þannig aðstæður myndast fellingafjöll. Hjáreksbelti reka flekarnir samsíða. Stundum i gagnstæðar áttir eða í sömu átt og þá er hvor á sinum rekhraða. Flekarnir hvorki minnka eða stækka í þessu ferli.